433

Sparkar umboðsmanninum í skugga þrálátra sögusagna um framtíð hans

Mynd
Getty Images

Julian Alvarez, framherji Atletico Madrid, hefur sagt skilið við umboðsmann sinn til margra ára, Fernando Hidalgo, eftir miklar deilur í kringum félagaskiptagluggann í sumar.

Hidalgo hefur verið umboðsmaður Argentínumannsins frá því hann var hjá River Plate og sá meðal annars um félagaskipti hans til Manchester City og síðar Atletico Madrid.

Alvarez var mikið orðaður við brottför frá Atletico í sumar og höfðu meðal annars Arsenal, Barcelona og Real Madrid áhuga. Atletico hafnaði þó öllum tilboðum, þar á meðal 127 milljóna punda tilboði frá Real Madrid.

Miguel Angel Gil Marin, framkvæmdastjóri Atletico, sagði á sínum tíma að ákveðnir aðilar hefðu blekkt Alvarez og ruglað hann í ríminu. Hann væri því að ganga í gegnum erfiða tíma bæði innan vallar sem utan.

Samkvæmt fjölmiðlum á Spáni og í Argentínu gæti Javier Pastore, fyrrverandi leikmaður PSG, tekið við sem umboðsmaður Alvarez. Pastore er einnig umboðsmaður Enzo Fernandez og sá um félagaskipti hans frá Chelsea til Manchester City í sumar.