433

Sagður líklegastur til að taka við af Carrick

Mynd
Getty Images

Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, er sagður efstur á óskalista Manchester United ef félagið ákveður að reka Michael Carrick. The Sun greinir frá.

United hefur byrjað tímabilið illa og aðeins unnið tvo af fyrstu níu leikjum sínum. Forráðamenn félagsins ætla þó að gefa Carrick meiri tíma en staða hans er engu að síður talin óörugg.

Mynd
Getty Images

Hurzeler, sem er 33 ára, hefur vakið mikla athygli fyrir störf sín hjá Brighton. Hann framlengdi samning sinn við félagið í sumar og þyrfti United því að greiða háar bætur fyrir að fá hann.

Carrick tók við United til frambúðar í sumar eftir að hafa snúið genginu við og tryggt Meistaradeildarsæti sem bráðabirgðastjóri á síðustu leiktíð.