433

Mahrez skiptir um félag

Mynd
Getty Images

Riyad Mahrez, fyrrverandi leikmaður Manchester City og Leicester, er genginn til liðs við Al Shamal í Katar. Hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Al Ahli í Sádi-Arabíu.

Mahrez, sem er 35 ára, lék með Al Ahli síðustu þrjú árin og varð tvívegis Asíumeistari með félaginu. 

Alsíringurinn gerði garðinn frægan í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann varð Englandsmeistari með Leicester árið 2016 áður en hann gekk til liðs við Manchester City tveimur árum síðar.

Hjá City varð Mahrez fjórum sinnum Englandsmeistari og vann Meistaradeild Evrópu árið 2023.

Mahrez lagði landsliðsskóna á hilluna eftir HM í sumar. Hann lék alls 119 landsleiki fyrir Alsír, skoraði 40 mörk og varð Afríkumeistari árið 2019.