433

Magnaður áfangi Glódísar

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Glódís Perla Viggósdóttir landsliðsfyrirliði var heiðruð fyrir stórsigur Íslands gegn Króatíu í gær, en hún var að spila sinn 150. landsleik.

Ísland fór létt með Króatíu og er liðið komið í úrslitaeinvígi umspilsins um sæti á HM í Brasilíu næsta sumar, þar sem andstæðingurinn verður Portúgal.

Fyrir leik var klappað vel og innilega fyrir mögnuðum áfanga Glódísar, auk þess sem Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, afhenti henni innrammaða treyju með nafni hennar og tölunni 150.

Glódís hefur leikið með landsliðinu síðan 2012 og hefur farið á fjögur Evrópumót. Vonandi bætist heimsmeistaramótið við næsta sumar.