433

Guðmundur hætti vegna hjartasjúkdóms - Hefur séð mann hníga niður á æfingu

Mynd
Besta deildin Stjarnan
Mynd: DV/KSJ

Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði Stjörnunnar, ákvað að leggja skóna á hilluna vegna hjartasjúkdóms sem hann greindist með í sumar.

Frá þessu greinir Guðmundur í samtali við RÚV. Hann hélt áfram að spila eftir að hafa greinst með sjúkdóminn í sumar en ákvað að lokum að láta staðar numið að læknisráði og í samráði við sína nánustu. Hann spilar því ekki síðustu leiki Stjörnunnar á tímabilinu.

„Ég greindist með hjartasjúkdóm í sumar sem er þykknun á hjartavöðva. Eins og læknir orðaði það við mig þá er þetta algengasta orsökin fyrir því að íþróttafólk hnígur niður á leikvelli. Mér var því ráðlagt að leggja skóna á hilluna,“ segir Guðmundur við RÚV.

Guðmundur segist jafnframt hafa fundið fyrir hræðslu í leikjum eftir greininguna, enda hafi hann sjálfur orðið vitni að því þegar leikmenn hafa fengið hjartaáfall.

„Maður hefur horft á leikmenn fá hjartaáfall á æfingu eða í leik og það er bara hræðileg upplifun. Það hefur verið svolítið lifandi í hausnum á mér síðan líka.“

Guðmundur, sem er 37 ára, hefur átt frábæran feril. Hann varð Íslandsmeistari með Breiðabliki ungur að árum áður en hann fór til Start í Noregi og lék þar við góðan orðstír í fimm ár.

Við tók dvöl hjá FH og Stjörnunni síðustu ár, auk þess sem Guðmundur á að baki sjö A-landsleiki fyrir Íslands hönd.

Viðtalið í heild