433

Fullyrt að Heimir sé á leið upp á Skaga

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Heimir Guðjónsson verður næsti þjálfari karlaliðs ÍA, samkvæmt Kristjáni Óla Sigurðssyni sparspekingi.

Heimir þjálfar í dag Fylki og kom hann liðinu alla leið í úrslitaleik umspilsinsins í Lengjudeild karla í haust, þar sem liðið tapaði fyrir Þrótti. 

Heimir tók við Fylki eftir síðustu leiktíð en er auðvitað þekktastur fyrir stórkostlegan árangur með FH um árabil, auk þess sem hann gerði Val einnig að Íslandsmeisturum.

Lárus Orri Sigurðsson þjálfar í dag ÍA en hann hefur verið orðaður við brottför. Kristján segir að Heimir taki við starfi hans og boðar hann nánari upplýsingar um málið í hlaðvarpi sínu, Þungavigtinni, síðar í dag.