433

Færsla leikmanns United vekur mikla athygli

Mynd

Amad Diallo, leikmaður Manchester United, var allt annað en sáttur eftir 2-0 tap liðsins gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í gær.

Diallo birti mynd af sér úr leiknum á Snapchat eftir leik og lét þar stór orð falla.

„Það er skömm að þessu. Ég á ekki til orð,“ skrifaði Fílabeinsstrendingurinn, en ekki er ljóst hvort hann var að gagnrýna frammistöðu liðsins, dómgæsluna eða eitthvað annað.

Diallo byrjaði á varamannabekknum í Madríd en kom inn á fyrir Marcus Rashford í síðari hálfleik. Hann náði þó ekki að hafa áhrif á leikinn.

Lisandro Martinez, samherji hans, lét þá gamminn geisa eftir leik eins og frægt er og gagnrýndi forráðamenn United harðlega fyrir að hafa ekki styrkt leikmannahópinn nægilega í sumar.

Gengi United á hingað til á leiktíðinni hefur verið afleitt og er pressa farin að myndast á stjóranum Michael Carrick.