Lisandro Martinez, varnarmaður Manchester United, gagnrýndi forráðamenn félagsins harðlega eftir 2-0 tap gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Ummælin hafa vakið mikla athygli og Wayne Rooney er meðal þeirra sem hafa gagnrýnt Argentínumanninn.
„Við áttum frábært tímabil í fyrra og nú væntum við meira frá þeim sem stjórna félaginu. Við þurfum fleiri leikmenn til að vera samkeppnishæfir,“ sagði Martinez.
Martinez virtist jafnframt koma Michael Carrick, knattspyrnustjóra liðsins, til varnar. Hann benti á að auðvelt væri að kenna þjálfurum og leikmönnum um slakt gengi en að einnig þyrfti að skoða ákvarðanir þeirra sem stjórna hjá félaginu.
Rooney var ekki hrifinn af ummælunum og sagði Martinez hafa gengið of langt. „Þetta er vanvirðing við samherja hans. Hann er í raun að segja að þeir séu ekki nógu góðir,“ sagði Rooney og taldi að slík mál ætti að ræða innan félagsins.
Carrick vildi lítið tjá sig um málið og sagðist ekki hafa séð viðtalið. Hann lagði þó áherslu á að liðið þyrfti að standa saman. United hefur nú spilað fimm leiki í röð án þess að vinna.