Það var líf og fjör í Meistaradeild Evrópu í kvöld, þar sem níu leikir fóru fram.
Ensku liðin Liverpool og Aston Villa voru heldur betur á skotskónum. Liverpool vann 3-6 sigur á LASK í Austurríki þar sem Bradley Barcola, nýr leikmaður Liverpool sem hefur hlotið nokkra gagnrýni, skoraði þrennu. Ronald Araujo, Jeremie Frimpong og Lewis Koumas skoruðu einnig. Villa skoraði einnig sex og hélt hreinu gegn Fenerbahce á heimavelli.
Stórleikur kvöldsins var í Manchester þar sem City tók á móti Evrópumeisturum PSG. Gestirnir leiddu 0-3 í hálfleik með mörkum frá Desire Doue, Ousmane Dembele og Vitinha. Erling Braut Haaland lagaði stöðuna fyrir City með tveimur mörkum í seinni hálfleik en Maghnes Akliouche skoraði fjórða mark PSG. Lokatölur 2-4.
Real Madrid vann dramatískan 3-4 sigur á Roma eftir að hafa lent 3-1 undir og Bodo/Glimt vann frábæran sigur á Dortmund í Noregi. Kemur þetta degi eftir að annað þýskt stórlið, Bayern Munchen, gerði jafntefli við norsku meistarana í Viking.
Úrslit kvöldsins
Feyenoord 3-2 Como
LASK 3-6 Liverpool
Roma 3-4 Real Madrid
Aston Villa 6-0 Fenerbahce
Real Betis 3-2 Porto
Bodo/Glimt 1-0 Dortmund
Manchester City 2-4 PSG
Shakhtar 3-1 AEK
Slovan Bratislava 0-3 Stuttgart