Chelsea hefur mikinn áhuga á Alex Scott og ku vera tilbúið að bjóða í hann strax í janúar.
Hinn 23 ára gamli Scott hefur slegið í gegn með Bournemouth og lék sína fyrstu A-landsleiki fyrir Englands hönd á dögunum.
Bournemouth vill þó alls ekki missa miðjumanninn og er talið að hann gæti kostað um 100 milljónir punda, en samningur hans rennur út sumarið 2028.
Chelsea missti Enzo Fernandez af miðjunni í sumar og á eftir að fylla skarð hans. Félagið var við það að kaupa Lamine Camara frá Monaco undir lok félagaskiptagluggans en franska félagið hætti við á síðustu stundu.
Það er því búið að gera ráð fyrir því að verja pening í miðsvæðið og Chelsea er því klárt í að gera atlögu í janúar.
Einnig hafa verið sögusagnir á kreiki um að Chelsea hafi áhuga á Frenkie de Jong, miðjumanni Barcelona.