Nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós í Meistaradeild Evrópu í kvöld, en níu leikir fóru fram.
Englandsmeistarar Arsenal skoruðu fyrsta markið gegn Hákoni Arnari Haraldssyni og félögum í Lille ekki fyrr en á 64. mínútu, þegar Jurrien Timber var á ferðinni, en liðið vann að lokum þægilegan 3-0 sigur eftir mörk frá Eberecehi Eze og Bukayo Saka. Hákon spilaði allan leikinn með franska liðinu.
Manchester United tapaði 2-0 gegn Atletico Madrid á Spáni. Pablo Barrios og Ademola Lookman skoruðu mörkin en á 74. mínútu, í stöðunni 1-0, fékk Leny Yoro að líta rauða spjaldið eftir skoðun í VAR fyrir að brjóta af sér sem aftasti maður.
Barcelona vann 1-4 sigur á Galatasaray og Club Brugge vann ansi óvæntan útisigur á Inter en í Noregi fór fram ótrúlegur leikur þar sem Viking og Bayern Munchen gerðu jafntefli á gervigrasinu í Stafangri.
Norsku meistararnir komust í 2-0 í fyrri hálfleik með mörkum Gianni Stensness og Peter Christiansen en Harry Kane jafnaði fyrir Bayern með tveimur mörkum á fyrsta stundarfjórðungi síðari hálfleiks.
Á 71. mínútu kom Luis Diaz gestunum yfir en skömmu síðar fékk Michael Olise að líta rautt spjald. Það fór svo að Herman Johan Haugen jafnaði metin í 3-3 í uppbótartíma og þar við sat. Amin Cosic sat allan tímann á varamannabekk Viking.
Öll úrslit kvöldsins
Lens 0-2 Sporting
Sabah 2-0 Slavia Prag
Arsenal 3-0 Lille
Atletico Madrid 2-0 Manchester United
Galatasaray 1-4 Barcelona
Inter 3-4 Club Brugge
RB Leipzig 1-0 PSV
Viking 3-3 Bayern Munchen
Villarreal 3-1 Napoli.