Nicky Butt, fyrrverandi leikmaður Manchester United, segir að Michael Carrick hafi ekki haft áhuga á að taka við starfi knattspyrnustjóra áður en honum bauðst að taka við United.
Carrick tók við liðinu í janúar eftir brottrekstur Ruben Amorim og stýrði því í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, sem þótti ansi gott eftir dapurt gengi á fyrri hluta hennar.
Byrjunin á þessari leiktíð hefur hins vegar verið slæm og hefur United aðeins fengið sex stig úr fyrstu sex leikjunum í ensku úrvalsdeildinni. Pressa er þegar farin að myndast á Carrick.
„Ég ræddi við Michael áður en hann tók við United og hann sagði að þjálfun væri ekki fyrir sig. Þetta væri of mikið álag og hann myndi aðeins taka við stóru starfi, Manchester United,“ segir Butt, en áður en Carrick tók við United hafði hann stýrt Middlesbrough í ensku B-deildinni.
Butt telur að Carrick hafi áttað sig á því eftir að hann tók við að United væri orðið allt annað félag en hann þekkti frá sínum tíma þar sem leikmaður. Hann segir þó að fyrrverandi leikmenn félagsins eigi erfitt með að segja nei þegar United kallar.