433

Stríð þekktra fjölmiðlamanna að ná hámarki - „Kannski er það ástæðan fyrir því að hann er svona mikil væluskjóða“

Mynd
Piers Morgan.

Fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan segir Jamie Carragher, fyrrverandi leikmann Liverpool og nú vinsælan sparkspeking í sjónvarpi, algjöra væluskjóðu, en þeir hafa átt í deilum undanfarna daga.

Þær deilur hófust þegar Carragher gagnrýndi Morgan og Rio Ferdinand fyrir að verja Cristiano Ronaldo eftir að Portúgalinn yfirgaf landsliðshóp Portúgal í miklu fússi. Carragher telur vináttu þeirra og samband við Ronaldo hafa áhrif á dómgreind þeirra.

Morgan hefur aðgang að Ronaldo sem fáir ef nokkur hefur. Hafa viðtöl hans við stórstjörnuna vakið athygli. Þá unnu Ferdinand og Ronaldo fjölda titla saman hjá Manchester United.

Mynd
Getty Images

Morgan telur að Carragher sé meðal annars bitur út í Ronaldo fyrir að taka ekki í hönd hans í beinni útsendingu á Sky fyrir nokkrum árum.

„Carragher upplifði algjöra höfnun frá Ronaldo í beinni útsendingu á Sky, þegar hann neitaði meira að segja að viðurkenna tilvist hans. Kannski er það ástæðan fyrir því að hann er svona mikil væluskjóða,“ segir Morgan í þætti sínum.

Carragher hefur svarað fullum hálsi og kallað Morgan hræsnara. Hann rifjaði meðal annars upp gamla grein þar sem Morgan kallaði Ronaldo ofdekraða frekju.

Morgan sagði hins vegar að það væri Carrick sem væri hræsnarinn og rifjaði upp þegar hann stóð opinberlega með Luis Suarez, liðsfélaga sínum, í kjölfar þess að hann var sakaður um kynþáttaníð í garð Patrice Evra. 

Carragher hefur hins vegar svarað þessu og bent á að hann hafi beðist afsökunar á þessu fyrir löngu síðan.

Það má búast við að rimmu Morgan og Carragher sé ekki lokið enn.