433

Stórtíðindi úr Garðabæ - Rúnar Páll tekur við á ný

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Rúnar Páll Sigmundsson er nýr þjálfari karlaliðs Stjörnunnar og snýr þar með aftur til félagsins sem hann gerði að Íslandsmeisturum árið 2014. Hann kveður Gróttu til að taka við Stjörnunni.

Rúnar Páll hefur gert vel með Gróttu undanfarin ár, eða frá því hann tók við liðinu haustið 2024. Kom hann því upp úr 2. deild í fyrra og hélt liðinu í Lengjudeildinni í ár.

Stjarnan og Grótta komust að samkomulagi um að Rúnar færi aftur í Garðabæinn og er honum þakkað fyrir sín störf á Seltjarnarnesi, auk þess sem hann kveðst þakklátur fyrir tímabilin tvö hjá félaginu.

Rúnar stýrði Stjörnunni síðast frá 2013 til 2021. Auk Íslandsmeistaratitilsins 2014 fór liðið langt í undankeppni Evrópudeildarinnar sama ár og vann svo bikarinn árið 2018.

Stjarnan hefur valdið miklum vonbrigðum á leiktíðinni og bæði Jökull Elísabetarson og Jón Þór Hauksson fengið sparkið úr þjálfarastólnum. Kveðst félagið vilja lyfta stemningunni í félaginu upp á ný með komu Rúnars.

Tilkynning Stjörnunnar

Stjarnan hefur ráðið Rúnar Pál Sigmundsson sem þjálfara meistaraflokks karla. Gengið var frá ráðningunni í dag.

Rúnar Pál þarf vart að kynna fyrir Stjörnufólki eða íslensku knattspyrnuáhugafólki. Undir hans stjórn varð Stjarnan Íslandsmeistari í karlaflokki í fyrsta sinn árið 2014, án þess að tapa leik, og vann sinn fyrsta bikarmeistaratitil í karlaflokki árið 2018. Evrópuævintýrið sumarið 2014, sem leiddi liðið alla leið á San Siro gegn Inter, er einnig greypt í minni Stjörnufólks.

Fyrir árangurinn árið 2014 var Rúnar Páll valinn þjálfari ársins af Samtökum íþróttafréttamanna og þjálfari ársins í efstu deild karla að mati fotbolti.net.

Rúnar Páll á stóran þátt í nokkrum af stoltustu stundum í sögu félagsins. Nú snýr hann aftur til uppeldisfélags síns og við horfum með tilhlökkun og metnaði til næsta kafla.

Innan knattspyrnudeildarinnar er mikill metnaður fyrir því að koma Stjörnunni aftur í fremstu röð íslenskrar knattspyrnu og berjast um titla. Jafnframt viljum við endurvekja þá einstöku stemningu sem hefur áður sameinað bæinn og efla samstöðuna sem býr í samfélaginu okkar í Garðabæ.

Við vitum hvað er hægt þegar leikmenn, þjálfarar, starfsfólk og stuðningsfólk leggjast á eitt. Við höfum upplifað það saman og við ætlum okkur að skapa fleiri slíkar stundir.

Velkominn heim, Rúnar Páll!