433

Pínlegt viðtal vekur mikla athygli - Forðaðist eins og hann gat að horfa á fréttakonuna

Mynd

David Olehla, þjálfari tékkneska liðsins Viagem Usti nad Labem, hefur vakið mikla athygli fyrir viðtal eftir leik. 

Í viðtalinu virtist hann leggja sig allan fram við að horfa ekki á Sabina Jaksova, glæsilega fréttakonu sem ræddi við hann.

Hefur þetta farið í mikla dreifingu á samfélagsmiðlum og vakið kátínu meðal margra. „Hann er að berjast fyrir lífi sínu,“ skrifaði einn netverji um málið. 

Viagem situr nú í öðru sæti næstefstu deildar Tékklands.

Jaksova starfar fyrir Viagem og vakti athygli á sínum tíma þegar hún viðurkenndi að hún hefði ekki mikla þekkingu á knattspyrnu til að byrja með. Það hefur þó lagast með tímanum.