433

Kynlífsmyndband vakti reiði - Íslendingar þekkja tökustaðinn afar vel

Mynd

Fjölmiðillinn The Upshot sérhæfir sig í furðufréttum sem tengjast íþróttum á einn eða annan hátt og rifjaði miðillinn upp þegar kynlífsmyndband frá heimavelli franska knattspyrnufélagsins Nice fór í dreifingu fyrir nokkrum árum.

Myndbandið var tekið á meðan leik Nice og Lille stóð í efstu deild Frakklands. Um 22 þúsund áhorfendur voru viðstaddir leikinn en talið er að gjörningurinn hafi átt sér stað inni á salerni.

Nice lagði fram kæru vegna málsins á grundvelli þess að það skaðaði ímynd félagsins en ekki kom fram hvort einhver hafi hlotið refsingu vegna þess.

Margir Íslendingar þekkja heimavöll Nice, sem er gjarnan kallaður Hreiðrið. Það var þar sem íslenska karlalandsliðið vann England í 16-liða úrslitum Evrópumótsins fyrir rúmum tíu árum síðan.