Bobby Thomas, varnarmaður Coventry, hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í ensku úrvalsdeildinni og kalla stuðningsmenn til að mynda eftir því að Thomas Tuchel velji hann í enska landsliðið.
Thomas, sem er 25 ára gamall, átti stórleik þegar nýliðarnir unnu Newcastle 4-1 í fyrrakvöld og var valinn maður leiksins af Sky Sports.
Jamie Carragher hrósaði Thomas í hástert eftir leikinn og líkti varnarleik hans við John Terry þegar hann var upp á sitt besta.
„Þetta er nú ágætis samanburður,“ sagði Thomas léttur í bragði þegar hann var spurður út í ummæli Carragher.
Thomas gekk til liðs við Coventry frá Burnley árið 2023 og var valinn í lið ársins í ensku B-deildinni á síðustu leiktíð.
Verði hann valinn í enska landsliðið verður hann fyrsti leikmaður Coventry til að ná þeim áfanga síðan Dion Dublin spilaði fyrir þjóðina árið 1998.