433

Gerrard ósammála Carragher

Mynd
Getty Images

Steven Gerrard, goðsögn Liverpool, er ósammála Jamie Carragher um hvernig félagið eigi að bregðast við slakri frammistöðu Florian Wirtz.

Wirtz hefur átt erfitt uppdráttar síðan Liverpool keypti hann frá Bayer Leverkusen í fyrra fyrir um 115 milljónir punda. Carragher gagnrýndi Þjóðverjann harðlega eftir 3-0 tap gegn Manchester City um helgina og kallaði eftir meðal annars eftir því að Andoni Iraola tæki hann úr liðinu.

Mynd
Getty Images

„Sjálfstraustið hans er í molum og hann er ekki að spila nógu vel. En ég held að strákurinn þurfi hjálp frá stjóranum, þjálfurunum og reyndari leikmönnum. Þetta er gríðarlega hæfileikaríkur leikmaður og ég myndi ekki gefast upp á honum strax,“ segir Gerrard.

Gerrard segir þó að Wirtz þurfi að bæta sig og að nokkrir leikir á varamannabekknum gætu jafnvel gert honum gott. Hann telur hins vegar of snemmt að afskrifa kappann.