433

Bayern og PSG horfa til Manchester United

Mynd
Getty Images

Paris Saint-Germain og Bayern Munchen hafa áhuga á Leny Yoro, varnarmanni Manchester United, sem hefur átt erfitt uppdráttar undir stjórn Michael Carrick. Knattspyrnumiðillinn Teamtalk greinir frá.

Yoro, sem er tvítugur, gekk til liðs við United frá Lille árið 2024 fyrir rúmlega 50 milljónir punda. Frakkinn var fastamaður undir stjórn Ruben Amorim en hefur aðeins spilað 88 mínútur í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

PSG hefur lengi haft augastað á Yoro og vill fá hann aftur til Frakklands. Bayern Munchen er einnig sagt fylgjast með stöðu kappans, sem gæti fengið meiri spiltíma hjá öðru félagi.

Yoro byrjaði sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu gegn Tottenham um helgina og lék þá í hægri bakverði. United er sagt líta á hann sem mikilvægan framtíðarleikmann.