433

Afskaplega öruggt hjá Íslandi - Aðeins ein hindrun eftir

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Íslenska kvennalandsliðið valtaði yfir Króatíu á Laugardalsvelli í seinni leik liðanna í undanúrslitum umspilsins um sæti á heimsmeistaramótinu næsta sumar. Stelpurnar okkar leiddu 4-0 eftir fyrri leikinn ytra.

Hlín Eiríksdóttir kom Íslandi yfir á 35. mínútu og skömmu síðar tvöfaldaði Ída Marín Hermannsdóttir forskotið með sínu fyrsta landsliðsmarki. 

Staðan var 2-0 í hálfleik og seinni hálfleikur var um tíu mínútna gamall þegar Katla Tryggvadóttir kom Íslandi í 3-0. Þetta var sömuleiðis hennar fyrsta landsliðsmark.

Diljá Ýr Zomers innsiglaði 5-0 sigur íslenska liðsins með tveimur mörkum undir lokin. Ísland vinnur einvígið því samanlagt 9-0.

Ísland mætir að öllum líkindum Portúgal í úrslitaeinvígi um farseðilinn á HM í Brasilíu. Verður spilað í kringum mánaðarmótin nóvember-desember og fer fyrri leikurinn fram ytra.