Real Madrid hefur sett sig í samband við Manchester United vegna mögulegra kaupa á hinum 16 ára gamla JJ Gabriel. Spænski miðillinn AS greinir frá.
Gabriel þykir eitt mesta efni United en hann skoraði 29 mörk og lagði upp fjögur í 32 leikjum með unglingaliðum félagsins á síðustu leiktíð. Hann hefur einnig byrjað vel með U-21 árs liðinu á þessu tímabili.
Kappinn er hins vegar sagður vilja yfirgefa United og hefur Real Madrid nú óskað eftir að fá að ræða við leikmanninn um möguleg félagaskipti.
Barcelona og Bayern Munchen hafa einnig áhuga á Gabriel en United vill halda í leikmanninn. Óvíst er hvort af félagaskiptum verður, meðal annars vegna reglna um félagaskipti leikmanna undir 18 ára aldri.