433

Þorsteinn: „Ég skal vera alveg hreinskilinn“

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Íslenska kvennalandsliðið mætir Króatíu í seinni leik liðanna í undanúrslitum umspilsins um sæti á heimsmeistaramótinu í kvöld. Stelpurnar okkar eru í frábærri stöðu eftir fyrri leikinn á útivelli, en hann vannst 0-4.

„Það sem við tölum um er að við erum ekki búin að klára þetta. Við getum ekki fagnað neinu fyrr en það er búið. Staðan er góð og við hefðum alltaf tekið henni fyrirfram. Við gerum allt sem við getum til að halda einbeitingu og spila góðan leik,“ sagði Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari á blaðamannafundi fyrir leikinn, sem hefst klukkan 17:30 á Laugardalsvelli.

Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir tók undir þetta.

„Við einbeitum okkur bara að okkur. Það er bara hálfleikur og við getum vonandi gert enn betur en úti, það eru fullt af hlutum sem við viljum gera betur. Það gekk vel í föstum leikatriðum en vantað upp á eitthvað líka. Við gerum gríðarlegar kröfur á okkur.“

Voru þau spurð að því hvort þau hafi freistast til að líta aðeins á portúgalska landsliðið, sem verður að öllum líkindum andstæðingurinn í úrslitaeinvíginu um sæti á HM. Eins og Ísland eru þær 4-0 yfir í sínu einvígi fyrir seinni leikinn.

„Ég skal vera alveg hreinskilinn, ég hef ekki horft á sekúndu með Portúgal,“ svaraði Þorsteinn léttur um hæl.