Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Breiðabliks, sem og reyndar nokkrir samherjar hans, eru orðaðir við Val. Hefur Höskuldur raunar verið orðaður við Hlíðarendafélagið frá því í sumar.
Hinn 32 ára gamli Höskuldur hefur leikið allan sinn feril á Íslandi með Breiðabliki, sem og venslaliðinu Augnabliki er hann var ungur að árum. Þá lék hann í atvinnumennsku í Svíþjóð.
Samningur Höskuldar við Blika rennur út eftir næstu leiktíð og er hann þrálátlega orðaður við Val. Spilar þar sterklega inn í að Halldór Árnason, fyrrum þjálfari hans í Kópavoginum, tekur við sem þjálfari á Hlíðarenda eftir yfirstandandi leiktíð. Sjálfur hefur Höskuldur hingað til hafnað þessum sögusögnum.
Í slúðurpakka á Fótbolta.net á dögunum voru bæði Höskuldur og Viktor Örn Margeirsson mátaðir við Val. Var slúðrið á þá leið að þeir eða Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Blika, færu eftir tímabil.
Breiðablik varð bikarmeistari á leiktíðinni en hefur valdið miklum vonbrigðum í Bestu deildinni. Málið var til umræðu í Innkastinu á Fótbolta.net og þar sagði sparkspekingurinn Valur Gunnarsson að ekki væri hægt að útiloka það að Ólafur Ingi, sem tók við liðinu í fyrra, yrði látinn fara.
„Af hverju ætti sú sviðsmynd ekki að vera til, þetta er búið að vera hræðilegt tímabil? Við tökum bikarinn aðeins út fyrir sviga,“ sagði Valur. Hann og meðlimir þáttarins voru þó á því að líklegri niðurstaða væri að Ólafur fengi annað tímabil í Kópavoginum eftir bikarmeistaratitilinn, sem tryggði liðinu um leið Evrópudeildarsæti fyrir næstu leiktíð.
Auk Höskuldar og Viktors Arnar voru Blikarnir Viktor Karl Einarsson, Kristófer Ingi Kristinsson og Kristinn Steindórsson orðaðir við Val í áðurnefndum slúðurpakka.