Wayne Rooney, fyrrum fyrirliði Manchester United, segist ekki vilja fá sigurverðlaun fyrir tímabilið 2011/12 þótt Manchester City verði svipt Englandsmeistaratitlinum vegna brota á fjármálareglum.
City hefur verið fundið sekt um meirihluta þeirra brota sem enska úrvalsdeildin ákærði félagið fyrir. Félagið hefur áfrýjað niðurstöðunni og gæti átt yfir höfði sér þungar refsingar.
Manchester United endaði í öðru sæti tímabilið 2011/12, jafnt City að stigum, en Sergio Aguero tryggði City titilinn með sögulegu marki gegn QPR í lokaumferðinni.
Rio Ferdinand, Paul Scholes og David de Gea hafa allir lýst yfir áhuga á að fá sigurverðlaun afhent eftir á verði City svipt titlinum.
Rooney er hins vegar á annarri skoðun.
„Þetta er erfitt. Ég horfi á þetta frá sjónarhóli leikmannanna. Þeir vissu ekki hvað var í gangi og fóru út á völlinn og unnu deildina árið 2012,“ sagði Rooney í Match of the Day 2.
„Við enduðum í öðru sæti. Við urðum ekki meistarar og þess vegna myndi ég ekki vilja fá verðlaunapening fyrir annað sætið.“
Rooney sýndi leikmönnum City jafnframt samúð og sagði þá ekki bera ábyrgð á ákvörðunum stjórnenda félagsins.
Manchester City heldur fram sakleysi sínu og niðurstöðu áfrýjunar er beðið á næstu mánuðum.