433

Ödegaard gæti hjálpað Arsenal að fá samlanda sinn til félagsins

Mynd
Getty Images

Arsenal hefur áhuga á Antonio Nusa, 21 árs gömlum kantmanni RB Leipzig.

Football Insider greinir frá þessu og þar kemur jafnframt fram að Martin Ödegaard, fyrirliði Arsenal, gæti tekið þátt í því að reyna að sannfæra leikmanninn um að koma til Englandsmeistaranna.

Mynd
Antonio Nusa

Getty Images

Báðir eru þeir leikmenn norska landsliðsins og var Nusa í stóru hlutverki með liðinu er það heillaði á HM vestanhafs í sumar. Þá hefur hann skorað þrjú mörk og lagt upp þrjú í fyrstu fimm leikjum þýsku deildarinnar á leiktíðinni.

Talið er að Tottenham og Brentford hafi einnig áhuga á Nusa, sem er samningsbundinn Leipzig til sumarsins 2029.