433

Nýliðarnir skoruðu fjögur

Mynd
Getty Images

Nýliðar Coventry unnu sannfærandi sigur á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Jack Rudoni skoraði eina mark fyrri hálfleiks og Sidiki Cherif tvöfaldaði forskotið snemma í þeim seinni.

Sven Botman minnkaði muninn fyrir Newcastle en Ellis Simms og Stephen Mfuni svöruðu með tveimur mörkum fyrir heimamenn.

Lokatölur 4-1. Coventry er með sex stig í fjórtánda sæti og fer upp að hlið Manchester United. Newcastle hefur tveimur stigum meira og er í ellefta sæti.