Doug Loft, fyrrverandi fyrirliði ensku knattspyrnuliðanna Port Vale og Gillingham, er látinn, 39 ára að aldri eftir að hafa veikst skyndilega um helgina.
Loft lék 196 leiki með Port Vale á árunum 2009 til 2014 og var valinn leikmaður ársins hjá félaginu árið 2012. Hann tók síðar við fyrirliðabandinu og leiddi liðið upp úr ensku D-deildinni.
Hann gekk til liðs við Gillingham árið 2014 og varð einnig fyrirliði þar. Loft lék áður með Brighton og kom meðal annars við sögu í ensku B-deildinni með liðinu.
Port Vale, Gillingham og fleiri félög hafa vottað aðstandendum Loft samúð eftir að fréttirnar bárust í dag.