Andy Carroll, fyrrverandi landsliðsmaður Englands, þakkar fyrir mikinn stuðning eftir að hafa greint opinberlega frá því að karlmaður hefði beitt hann kynferðisofbeldi á heimili hans árið 2021.
Carroll, sem er 36 ára, var þá leikmaður Newcastle en gerandinn var vinur fyrrverandi maka hans. Maðurinn, Kevin Adams, var dæmdur í 20 mánaða fangelsi árið 2023 fyrir kynferðisbrot.
„Ég hef efast um sjálfan mig út af þessu en frá því um leið og ég sagði frá hefur stuðningurinn verið gríðarlegur. Ef ég hefði sagt frá þessu fyrir fimm árum hefði mér kannski liðið mun betur fyrr,“ segir Carroll.
Carroll var sofandi þegar brotið átti sér stað og hefur sagt það hafa verið niðurlægjandi og hræðilega erfitt að bera vitni fyrir dómi. Hann óttaðist lengi að ná sér aldrei eftir reynsluna en segir stuðning fjölskyldu, vina og almennings hafa hjálpað sér mikið.
Carroll lék einnig með liðum eins og Liverpool og West Ham á árum áður en er nú leikmaður og meðeigandi Dagenham, sem leikur í sjöttu efstu deild Englands.