Lionel Messi hefur valið tíu unga og efnilega knattspyrnumenn sem hann telur eiga framtíðina fyrir sér. Valið er hluti af nýjustu auglýsingaherferð Argentínumannsins með íþróttavöruframleiðandanum adidas.
Á hverju ári velur Messi tíu unga leikmenn víðs vegar að úr heiminum sem fá að leika í knattspyrnuskóm hans frá adidas.
Á listanum í ár er meðal annars Max Dowman, einn allra efnilegasti leikmaður Arsenal, sem hefur vakið mikla athygli fyrir hæfileika sína þrátt fyrir ungan aldur.
Dowman er annar tveggja Englendinga á listanum en hin er Chloe Sarwie, ung og efnileg knattspyrnukona úr röðum Chelsea.
Þá er Zavier Gozo, bandarískur sóknarmaður Crystal Palace, einnig á meðal þeirra sem Messi hefur valið að þessu sinni.
Nokkrir leikmenn sem Messi hefur valið undanfarin ár hafa þegar vakið mikla athygli.
Þar á meðal er Lamine Yamal, stórstjarna Barcelona, sem var á listanum árið 2024, og Rio Ngumoha, leikmaður Liverpool, sem var valinn árið 2025.
Það verður því áhugavert að fylgjast með þeim leikmönnum sem Messi hefur nú veitt viðurkenningu.