433

Jóhann Berg tjáir sig um fyllerí landsliðsmanna - „Pirringurinn hjá mér liggur þar“

Mynd

Agabrot nokkurra leikmanna íslenska karlalandsliðsins í fótbolta var á allra vörum í síðustu viku. Jóhann Berg Guðmundsson, sem á að baki yfir 102 A-landsleiki og lagði skóna á hilluna nýverið, ræddi málið í hlaðvarpinu Sjöunni, sem var sett á laggirnar á dögunum.

Sparkspekingurinn Kristján Óli Sigurðsson greindi fyrst frá málinu og sagði að um fyllerí hafi verið að ræða milli þriðja leiks síðasta landsleikjaverkefnis gegn Búlgaríu hér heima og fjórða leiksins gegn Eistlandi ytra. KSÍ staðfesti síðar að nokkrir leikmenn hefðu gerst sekir um agabrot.

„Áður fyrr var þetta algengara, að menn væru þyrstir og fengju sér í glas. Í gegnum tíðina hjá Íslandi hefur þetta komið upp. En þegar Lars (Lagerback) kom inn bannaði hann þetta alveg, eftir verkefnin líka. Hjá þeim sem hafa komið í kjölfarið hafa menn samt alveg fengið leyfi til að fá sér eitt og eitt rauðvínsglas eftir síðasta leik í verkefni og skála, sérstaklega þegar vel gengur,“ sagði Jóhann í Sjöunni.

Jóhann segir málið sérstaklega óheppilegt vegna arfadaprar frammistöðu í síðasta leik verkefnisins gegn Eistlandi, en þeim leik lauk með markalausu jafntefli.

„Auðvitað er þetta óheppilegt. Þeir fá frí þarna um kvöldið og einhverjir greinilega fara og fá sér, ég veit sjálfur ekki nákvæmlega hvað gerðist. Þeir töluðu um þetta innan hópsins, að þetta væri ekki nógu gott. Eistlands-leikurinn var líka svo lélegur og svo kemur þetta. Í þessum nútímafótbolta væri best að sleppa áfenginu milli leikja, sérstaklega þegar þú ert búinn að spila þrjá leiki á stuttum tíma. Það er þá kannski hægt að fá sér einn eða tvo eftir síðasta leikinn. Pirringurinn hjá mér liggur þar að ég hefði viljað sjá menn koma alveg brjálaða inn í þennan leik við Eistland, sýna að þetta hafi ekki haft áhrif. En sá leikur var bara mjög lélegur og þetta hjálpar ekki neinum.“

Jóhann útilokar ekki að þetta verði til þess að Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari seti mönnum strangari reglur í komandi verkefnum.

„Ég veit ekki hvernig reglurnar voru þetta kvöld, hvort menn hafi átt að mæta til baka á einhverjum ákveðnum tíma eða gist í heimahúsum. Þjálfarinn er með sínar reglur og ég held að hann sé ekki sáttur með þetta. Hvort hann taki á því eða ekki verður að koma í ljós. Mér heyrist að tekið hafi verið á þessu innanbúðar og vonandi er þetta bara búið.“