Manchester United verður án þeirra Luke Shaw og Kobbie Mainoo þegar liðið mætir Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Michael Carrick, stjóri United, hefur staðfest þetta.
Báðir leikmenn meiddust í 1-1 jafntefli gegn Tottenham um helgina og ferðuðust ekki með liðinu til Madrídar. Ekki liggur fyrir hversu lengi þeir verða frá.
United hefur átt erfitt uppdráttar á leiktíðinni og töluverð pressa er farin að myndast á Carrick. Liðið er aðeins með sex stig eftir jafnmarga leiki í ensku úrvalsdeildinni.
Þetta vekur athygli í ljósi þess að United var mikið orðað við vinstri bakverði, vegna meiðslasögu Shaw, í sumar. Carrick vildi bæta við sig vinstri bakverði en fékk ekki.
Aðspurður vildi hann ekki gagnrýna forráðamenn félagsins og sagði hann félagaskiptamarkaðinn geta verið flókinn.