433

Höddi Magg verulega hugsi: Sekir en vita ekki sekt sína - „Það er í meira lagi verulega bogið við þetta ferli“

Mynd

Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður og einn þekktasti stuðningsmaður Liverpool á Íslandi, er afar ósáttur við stöðuna í ensku úrvalsdeildinni eftir að Manchester City vann 3-0 sigur á Liverpool á Anfield í gær.

City hefur verið fundið sekt um fjölda brota á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar en félagið hefur áfrýjað niðurstöðunni. Enn ríkir óvissa um hvaða refsingar félagið gæti fengið.

Hörður birti harðorðan pistil á Facebook þar sem hann gagnrýndi málsmeðferðina og þau áhrif sem óvissan hefur á trúverðugleika deildarinnar.

„Enska úrvalsdeildin er í fullkomnu limbói og er í raun ómarktæk á meðan beðið er eftir „áfrýjun“ Man City,“ skrifaði Hörður.

Hann velti því jafnframt fyrir sér hvernig félagið gæti áfrýjað niðurstöðu áður en refsing hefði verið ákveðin.

„Af hverju geturðu áfrýjað áður en þú veist hver refsingin verður?“

Hörður telur að málið sé farið að skaða ímynd ensku úrvalsdeildarinnar verulega og gagnrýnir að City geti haldið áfram keppni án þess að afleiðingar brotanna liggi fyrir.

„Það er í meira lagi verulega bogið við þetta ferli úrvalsdeildarinnar. Í raun smánarblettur.“

„Þú hefur verið fundinn sekur en færð að haga þér eins og ekkert hafi gerst.“

Hörður segir jafnframt að því lengur sem málið dragist, þeim mun meiri skaða muni það valda.

„Því lengra sem þetta dregst því augljóslega mun þetta skaða ásýnd deildarinnar sem nú þegar hefur beðið mikinn hnekki.“

City vann sannfærandi sigur á Liverpool í gær þar sem Erling Haaland, Jeremy Doku og Rayan Cherki skoruðu mörkin.

Hörður er þó greinilega mun meira hugsi yfir stöðu ensku úrvalsdeildarinnar en úrslitum leiksins sjálfs.