433

Fjármagnið eykst mikið en skilar sér ekki í vasa leikmanna

Mynd
Getty Images

Það stefnir í að knattspyrna kvenna verði milljarða dollara iðnaður en stór hluti atvinnukvenna í fótbolta býr enn við lág laun, ótrygga samninga og mikið andlegt álag. Þetta kemur fram í nýrri könnun leikmannasamtakanna Fifpro meðal rúmlega 800 knattspyrnukvenna.

Alls sögðust 59 prósent leikmanna geta hugsað sér að hætta í fótbolta fyrr en ella vegna fjárhagslegra ástæðna og 46 prósent nefndu andlegt álag. Þá sögðust 57 prósent hafa glímt við andlega vanlíðan og helmingur þeirra hafði ekki fengið viðeigandi stuðning frá félagi sínu.

Meðalmánaðarlaun knattspyrnukvenna hafa þrefaldast frá árinu 2017 og eru nú um 2.600 dollarar, eða rúmlega 300 þúsund krónur. Miðgildi launa er hins vegar mun lægra, um 1.670 dollarar, eða rúmlega 200 þúsund krónur.

Aðeins 57 prósent þátttakenda sögðu launin nægja til að standa undir kostnaði við knattspyrnuiðkunina. Þá höfðu 24 prósent lent í því að fá laun greidd of seint á síðustu tveimur tímabilum og margir eru aðeins með samninga sem gilda hluta úr ári.

Talið er að tekjur í knattspyrnu kvenna fari úr 581 milljón dollara árið 2024 í meira en milljarð árið 2027. Alex Culvin hjá Fifpro segir mikilvægt að bætt kjör og stuðningur við leikmenn fylgi þessari miklu uppbyggingu, enda njóti aðeins lítill hluti þeirra góðs af aukinni fjárfestingu.