Orri Hrafn Kjartansson, leikmaður KR, hefur gagnrýnt framkomu nokkurra stuðningsmanna Fram eftir óhugnanlegt atvik í leik liðanna um helgina. Orri lenti illa á höfði og hálsi eftir byltu í leiknum en slapp sem betur fer án alvarlegra meiðsla.
Orri birti langan pistil á Facebook þar sem hann lýsti atvikinu og því sem gerðist í kjölfarið. Hann segir að þótt hann hafi sjálfur sloppið vel hafi hegðun einstakra stuðningsmanna Fram gagnvart honum og fjölskyldu hans setið í sér.
„Í leiknum gegn Fram í gær varð ég fyrir byltu á meðan ég var í loftinu. Við það missti ég jafnvægið og snerist í loftinu með þeim afleiðingum að ég lenti með höfuðið á undan mér,“ skrifaði Orri.
Hann segir að mikill snúningur hafi komið á hálsinn við lendinguna og að atvikið hafi verið afar óhugnanlegt.
Sjúkraþjálfarar beggja liða komu honum til aðstoðar og þakkar Orri sérstaklega sjúkraþjálfara Fram fyrir fagleg viðbrögð.
Það sem gerðist á áhorfendapöllunum vakti hins vegar mikla reiði hans.
„Á sama tíma þurftu þau að hlusta á einstaka stuðningsmenn Fram kvarta yfir því hversu lengi leikurinn væri stöðvaður, kalla á mig að drullast á lappir, segja mig vera aumingja og láta ýmis önnur óviðeigandi ummæli falla.“
Orri segir að faðir hans hafi brugðist við og beðið viðkomandi stuðningsmenn að haga sér almennilega. Einn fullorðinn maður hafi þá farið að ögra föður hans með athugasemdum og handahreyfingum.
Að sögn Orra héldu stuðningsmennirnir áfram að kalla ókvæðisorð að honum þegar hann gekk af velli.
Hann segir jafnframt frá því hvernig 16 ára bróðir hans gekk síðar að manninum sem hafði ögrað föður þeirra og útskýrði hvers vegna hegðun hans hefði verið óviðeigandi.
„Þetta er pabbi Orra sem slasaði sig áðan og þessi hegðun þín var virkilega léleg. Hann er bara maður sem var virkilega hræddur um son sinn,“ sagði bróðirinn við manninn.
Maðurinn hafi í kjölfarið beðist afsökunar.
„Þarna sýndi bróðir minn gríðarlegt hugrekki og ég er mjög stoltur af honum fyrir það,“ skrifaði Orri.
Hann þakkaði jafnframt stuðningsmönnum KR fyrir að klappa fyrir sér þegar hann gekk af velli.
Orri segist ekkert hafa á móti háværum stuðningi eða skotum milli stuðningsmanna og leikmanna en að draga verði mörkin þegar alvarleg meiðsli koma til.
„Þegar atvik eins og þetta eiga sér stað þurfa allir að geta lagt ríginn til hliðar og sýnt smá mannúð og virðingu. Gerum betur,“ skrifaði Orri að lokum.