433

Enska stórliðið gæti gert tilboð strax í janúar

Mynd

Chelsea hefur áhuga á Frenkie de Jong, miðjumanni Barcelona, og gæti reynt að kaupa Hollendinginn strax í janúar. Knattspyrnumiðillinn Football Insider greinir frá.

Chelsea leitar að miðjumanni eftir brotthvarf Enzo Fernandez til Manchester City í sumar og er De Jong, sem er 29 ára gamall, á blaði hjá félaginu. Barcelona ku vilja um 50 milljónir punda fyrir kappann.

De Jong hefur spilað stóra rullu með Börsungum undanfarin ár en er reyndar að jafna sig á meiðslum sem stendur. Hann er samningsbundinn í Katalóníu til ársins 2029.

Chelsea hafði náð samkomulagi um kaup á Lamine Camara frá Monaco fyrir 47 milljónir punda undir lok félagaskiptagluggans í sumar en franska félagið hætti við að selja á ögurstundu. Átti hann að fylla skarð Fernandez.