Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og sérfræðingur Sky Sports, var allt annað en sáttur við brottvísun Ryan Gravenberch í 3-0 tapi Liverpool gegn Manchester City á Anfield í gær.
Gravenberch fékk sitt annað gula spjald fyrir brot á Jeremy Doku þegar staðan var 0-0. Brottvísunin reyndist vendipunktur leiksins en Erling Haaland kom City yfir tæpum þremur mínútum síðar.
Carragher var sérstaklega ósáttur við fyrra gula spjaldið sem Gravenberch fékk fyrir brot á Elliot Anderson.
„Þetta er hrikaleg ákvörðun hjá dómaranum. Það sem pirrar mig er að hann ætlaði ekki að gefa gult spjald fyrr en hann hélt að Anderson væri meiddur,“ sagði Carragher.
„Þetta var varla aukaspyrna. Það er ótrúlegt að gefa gult spjald fyrir þetta.“
Gary Neville tók undir gagnrýnina og sagði seinna gula spjaldið afar strangt.
Roy Keane var sömuleiðis ósáttur en gagnrýndi jafnframt viðbrögð Liverpool eftir brottvísunina.
„Liverpool leit út eins og liðið hefði misst fjóra menn af velli. Það voru svæði út um allt og City stjórnaði leiknum,“ sagði Keane.
Daniel Sturridge tók einnig undir gagnrýnina og kallaði fyrra gula spjaldið brandara.
City nýtti sér liðsmuninn til fulls en Jeremy Doku bætti við öðru marki skömmu eftir mark Haaland áður en Rayan Cherki gulltryggði 3-0 sigurinn undir lokin.