433

Arsenal vill endursemja við fleiri lykilmenn

Mynd
Getty Images

Arsenal vill framlengja sem fyrst við Jurrien Timber, 25 ára gamlan varnarmann liðsins.

Timber hefur verið lykilmaður hjá Arsenal undir stjórn Mikel Arteta og lék 44 leiki á síðustu leiktíð þegar félagið varð Englandsmeistari. Samningur hans rennur út eftir næstu leiktíð.

Timber er fjölhæfur, getur leikið sem bakvörður og miðvörður. Hann vill vera áfram hjá Arsenal og ætti því fátt að koma í veg fyrir að hann skrifi undir nýjan samning.

Timber sneri nýlega aftur á völlinn eftir meiðsli í nára og er hann að koma sér í gang.

Arsenal vinnur einnig að nýjum samningum við Declan Rice og Martin Ödegaard. Má búast við að tilkynnt verði um þá á næstunni.