433

Áhyggjuefni fyrir Liverpool

Mynd
Getty Images

Dominik Szoboszlai, miðjumaður Liverpool, er tæpur fyrir leik liðsins gegn LASK í Meistaradeild Evrópu á morgun. Ungverjinn glímir við meiðsli aftan í læri og missti af 3-0 tapi Liverpool gegn Manchester City um helgina.

Szoboszlai sneri aftur úr landsliðsverkefni á dögunum með eymsli og reyndi að æfa með Liverpool en fann áfram fyrir þeim. Andoni Iraola, stjóri liðsins, segir þau ekki alvarleg en óvíst sé hvort kappinn nái leiknum í Austurríki.

Liverpool glímir við talsverð meiðslavandræði þessa dagana en Alexander Isak, Cody Gakpo, Hugo Ekitike, Conor Bradley og Giovanni Leoni eru einnig frá. 

Liðið mætir Brentford í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.