433

Skondin saga á bak við banana sem stuðningsmenn City mættu með í gær

Mynd

Stuðningsmenn Manchester City vöktu mikla athygli þegar þeir mættu með yfir þúsund uppblásna banana á Anfield fyrir stórleikinn gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

Uppátækið var svar stuðningsmannanna við niðurstöðu óháðrar nefndar sem fann City sekt um brot á fjármálareglum úrvalsdeildarinnar. Félagið hefur áfrýjað niðurstöðunni og heldur fram sakleysi sínu.

Bananarnir eiga sér langa sögu hjá City en hefðin hófst árið 1987 þegar stuðningsmaðurinn Frank Newton mætti með risastóran uppblásinn banana á leik gegn Plymouth Argyle.

Á þeim tíma lék City í næstefstu deild og notuðu stuðningsmennirnir húmor til að takast á við erfiða tíma. Uppblásnir bananar urðu í kjölfarið stór hluti af stuðningsmannamenningu félagsins.

Stuðningsmannahópurinn 1984 City stóð að baki framtakinu á Anfield og dreifði yfir þúsund bönunum fyrir leikinn.

Dante Friend, einn forsvarsmanna hópsins, sagði tilganginn vera að sýna félaginu óbilandi stuðning óháð mögulegum refsingum.

„Skilaboðin eru einfaldlega mótþrói. Okkur er skítsama hverjir eigendurnir eru. Við erum félagið. Stuðningsmennirnir eru félagið,“ sagði Friend við Sporting News.

City gæti átt yfir höfði sér þungar refsingar vegna fjármálabrotanna, jafnvel brottrekstur úr úrvalsdeildinni.

Stuðningsmennirnir vilja hins vegar minna á að þeir stóðu með félaginu áður en velgengnin hófst og muni gera það áfram, sama hvað gerist.