433

Ótrúleg uppákoma er heimsbyggðin fylgdist með - „Næstum kyrktur“ í beinni útsendingu

Mynd

Jota, leikmaður Celtic, lenti í heldur óvenjulegu atviki í 2-0 sigri liðsins gegn Motherwell í skosku úrvalsdeildinni um helgina. 

Portúgalinn var að snúa aftur eftir 533 daga fjarveru vegna alvarlegra hnémeiðsla og kom inn á sem varamaður á 74. mínútu. Var þetta jafnframt hans hundraðasti leikur fyrir Celtic.

Jota ætlaði að sækja boltann við hliðarlínuna nokkrum mínútum síðar þegar fáni stuðningsmanna Motherwell lenti á honum. Þegar fánanum var lyft aftur upp hafði hluti hans flækst um háls leikmannsins.

Jota náði að losa sig sjálfur og virtist nokkuð hissa á uppákomunni. Stuðningsmenn Motherwell hlógu margir að atvikinu.

Jota slapp þó ómeiddur og kláraði leikinn, en atvikið hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum og breskum fjölmiðlum.

„Stjarna Celtic næstum kyrkt,“ stóð til að mynda í frétt götublaðsins The Sun.