Liverpool hefur áhuga á Jules Kounde, varnarmanni Barcelona, sem gæti verið á förum frá spænska stórliðinu. Spænskir miðlar fjalla um málið.
Kounde, sem er 27 ára gamall, hefur misst fast sæti sitt í byrjunarliði Barcelona undir stjórn Hansi Flick á tímabilinu.
Hefur það sett önnur félög upp á tærnar, en Barcelona er sagt tilbúið að skoða tilboð upp á meira en 60 milljónir punda í Frakkann.
Kounde getur bæði leikið sem hægri bakvörður og miðvörður ku það heilla Liverpool.
Hann er þó samningsbundinn í Katalóníu til ársins 2030 og er talið að hann vilji helst berjast fyrir sæti sínu þar.