Soukphachan Lueanthala, landsliðsmaður Laos í knattspyrnu, hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa tekið þátt í hagræðingu úrslita í landsleikjum. The Guardian greinir frá.
Lueanthala, sem er 24 ára gamall og leikur með Salavan United í heimalandinu, er grunaður um að hafa aðstoðað veðmálahring frá Víetnam við að hafa áhrif á úrslit leikja Laos á Suðaustur-Asíumótinu í sumar.
Laos tapaði öllum fjórum leikjum sínum á mótinu, meðal annars 7-2 gegn Mjanmar og 5-0 gegn Taílandi. Nokkrir leikmenn voru yfirheyrðir eftir mótið og var Lueanthala í kjölfarið handtekinn, samkvæmt heimildum Guardian.
Kappinn er meðal annars grunaður um að hafa gefið samherjum sínum fyrirmæli og verið milliliður þeirra sem komu að meintri hagræðingu úrslitanna. Knattspyrnusamband Laos vísaði málinu til lögreglu.
Svipuð mál hafa áður komið upp í knattspyrnunni í Laos og var landsliðsmaður dæmdur í ævilangt bann árið 2020 fyrir aðild að hagræðingu úrslita.