433

Kjaftaði af sér í beinni útsendingu - Mun gullfallega eiginkonan slíta sambandinu?

Mynd

Riyad Mahrez, fyrrum leikmaður Manchester City, hefur vakið athygli eftir óheppileg ummæli sem hann lét falla í beinni útsendingu hjá Dele Alli á samfélagsmiðlum.

Alli var í beinni útsendingu þegar hann hringdi í Mahrez, sem virtist ekki átta sig á því að fjöldi áhorfenda gæti heyrt samtalið.

„Ég er í London að streyma. Fólk getur heyrt í þér, þú ert í beinni útsendingu, bróðir,“ sagði Alli.

Mahrez virtist hins vegar ekki heyra viðvörunina og svaraði:

„Ég er í Dubai, bróðir. Það eru nokkrar djöfulsins skvísur hérna, í alvöru.“

Mynd

Alli áttaði sig samstundis á því hvað vinur hans hafði sagt og færði sig frá hljóðnemanum. Þegar hann birtist aftur á skjánum var hann með stórt glott á vör.

Ummælin gætu reynst óheppileg fyrir Mahrez, sem er giftur Taylor Ward. Þau gengu í hjónaband árið 2023 og eiga saman fjölskyldu.

Ward hefur áður tjáð sig opinberlega um erfiðleikana við að flytja frá Manchester til Sádi-Arabíu vegna knattspyrnuferils eiginmannsins.

Í raunveruleikaþáttunum Married to the Game viðurkenndi hún að hafa fundið fyrir mikilli einmanaleikatilfinningu eftir flutningana.

„Ég á enga vini hérna. Allir vinir mínir eru frá grunnskóla eða framhaldsskóla og ég hef aldrei þurft að eignast nýja vini,“ sagði Ward.

Mahrez lék áður með Manchester City en gekk til liðs við Al Ahli árið 2023.