Erling Haaland, framherji Manchester City, hefur fest kaup á glæsilegri eign í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Faðir hans, Alfie Haaland, hefur einnig keypt sér hús á sama svæði.
Haaland, sem er 26 ára, greindi frá tíðindunum í myndbandi sem birt var á kynningarviðburði nýs fasteignaverkefnis Manchester City og fasteignafyrirtækisins Ohana Residences.
„Ég er mjög ánægður með að taka þátt í þessu verkefni. Við verðum nágrannar í Abu Dhabi. Ég var að kaupa mér hús og pabbi minn líka,“ sagði Haaland.
Eignirnar eru staðsettar á Yas Island þar sem verið er að byggja glæsilegt íbúðahverfi með sterkum tengslum við Manchester City.
Ekki hefur verið gefið upp hvaða eignir feðgarnir keyptu en fasteignirnar eru langt frá því að vera ódýrar.
Tveggja svefnherbergja raðhús kosta um 770 þúsund pund, eða rúmlega 130 milljónir íslenskra króna, á meðan stærri einbýlishús geta kostað yfir tvær milljónir punda.
Dýrustu eignirnar eru hins vegar verðlagðar á rúmlega 7,5 milljónir punda.
Í hverfinu verður meðal annars knattspyrnuakademía Manchester City, veitingastaðir og fjölbreytt útivistaraðstaða.
Alfie Haaland mætti sjálfur á kynningarviðburðinn ásamt Pep Guardiola, fyrrum knattspyrnustjóra City.
Þeir feðgar geta því hlakkað til að eyða meiri tíma saman í sólinni í Abu Dhabi.