Hollenska knattspyrnugoðsögnin Clarence Seedorf er snúin aftur í þjálfun eftir sjö ára fjarveru en hann hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri brasilíska stórliðsins Corinthians.
Seedorf, sem er fimmtugur, átti glæsilegan leikmannaferil og vann meðal annars Meistaradeild Evrópu fjórum sinnum með Ajax, Real Madrid og AC Milan.
Hann hóf þjálfaraferil sinn hjá AC Milan árið 2014 en stýrði einnig Shenzhen, Deportivo La Coruna og landsliði Kamerún. Hann hefur ekki þjálfað síðan hann yfirgaf Kamerún árið 2019.
Hjá Corinthians mun Seedorf meðal annars stýra tveimur fyrrum leikmönnum Manchester United, þeim Memphis Depay og Jesse Lingard.
Depay gekk til liðs við Corinthians árið 2024 og hefur síðan skorað 20 mörk og lagt upp 16 í 87 leikjum. Hann skrifaði nýlega undir samning til ársins 2028.
Lingard, sem er 33 ára, gekk til liðs við brasilíska félagið í mars eftir dvöl hjá FC Seoul í Suður-Kóreu.
Seedorf þekkir vel til brasilíska fótboltans eftir að hafa sjálfur leikið með Botafogo síðustu tvö ár leikmannaferils síns.