433

Carragher búinn að fá nóg af Wirtz – „Hann á ekki að vera í liðinu“

Mynd
Getty Images

Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool og sérfræðingur Sky Sports, var afar gagnrýninn á Florian Wirtz eftir 3-0 tap Liverpool gegn Manchester City á Anfield í gær.

Wirtz, sem kostaði Liverpool 116 milljónir punda, hefur átt erfitt uppdráttar frá komu sinni til félagsins. Þjóðverjinn hefur hvorki skorað mark né lagt upp fleiri en eitt í fyrstu sex deildarleikjum tímabilsins.

Carragher telur að tími sé kominn til að setja Wirtz á varamannabekkinn.

„Það sem Florian Wirtz er að gera fyrir Liverpool er einfaldlega ekki nóg. Hann hefur spilað um 60 leiki fyrir félagið og við eigum rétt á að ætlast til meira,“ sagði Carragher.

Hann benti á að ungu leikmennirnir Lewis Koumas og Rodrigo Munoz hefðu staðið sig betur en dýru stjörnurnar Wirtz og Bradley Barcola gegn City.

„Hann á ekki að vera í byrjunarliðinu núna. Ég vil ekki ráðast á leikmenn Liverpool en við erum ekki að tala um fimm eða tíu leiki. Þetta eru 50 til 60 leikir.“

Carragher gagnrýndi einnig hversu litla markógn Wirtz skapar.

„Hann lítur aldrei út fyrir að fara að skora. Maður sér hann hvorki skapa færi né ógna markinu. Það var nákvæmlega ekkert í hans leik í dag.“

Wirtz hefur skorað sjö mörk og lagt upp ellefu í 56 leikjum fyrir Liverpool.