433

Baleba segir frá SMS-skilaboðum sem hann fékk frá Pogba

Mynd

Carlos Baleba, miðjumaður Manchester United, hefur greint frá því að Paul Pogba hafi verið fyrstur til að senda honum skilaboð eftir að félagaskipti hans frá Brighton voru staðfest í ágúst.

United greiddi 65 milljónir punda fyrir hinn 22 ára gamla Kamerúnmann, auk fimm milljóna punda í mögulegum árangurstengdum greiðslum.

Baleba hefur áður sagt að Pogba hafi verið hans helsta fyrirmynd í æsku og því var það sérstakt fyrir hann að fá skilaboð frá Frakkanum.

„Það var Paul Pogba. Hann sagði mér að Manchester United væri stórt félag, Manchester frábær borg og að hann hefði virkilega notið tíma síns þar,“ sagði Baleba.

United hafði einnig áhuga á Baleba sumarið 2025 en Brighton verðlagði hann þá á 115 milljónir punda. Félagið ákvað því að bíða og tryggði sér leikmanninn ári síðar á mun lægra verði.

Baleba hefur jafnframt sagt að Michael Carrick, knattspyrnustjóri United, hafi haft mikil áhrif á ákvörðun sína.

„Það er ótrúleg tilfinning að ganga til liðs við draumafélagið mitt. Ég hlakka til að vinna með Carrick. Reynsla hans og þekking mun hjálpa mér að ná hæsta stigi,“ sagði Baleba.