433

Arsenal goðsögn hraunar yfir Saka - Þetta pirrar hann hvað mest

Mynd
Getty Images

David O'Leary, fyrrum leikmaður Arsenal, hefur gagnrýnt Bukayo Saka og telur að enski landsliðsmaðurinn sé ekki að standa undir væntingum eftir að hafa skrifað undir nýjan risasamning við félagið.

Saka, sem er 25 ára, varð launahæsti leikmaður Arsenal í febrúar þegar hann skrifaði undir samning sem tryggir honum um 300 þúsund pund á viku.

O'Leary, sem lék 722 leiki fyrir Arsenal, telur að Saka hafi dalað og gagnrýnir sérstaklega hversu auðveldlega hann fer niður við snertingu frá mótherjum.

„Mér finnst hann alls ekki vera í sínu besta formi. Mér líkar mjög vel við hann en mér finnst hann detta allt of oft núna,“ sagði O'Leary í samtali við talkSPORT.

„Hann er ekki sami leikmaður og hann var, það er alveg ljóst.“

O'Leary velti jafnframt fyrir sér hvort Saka væri að réttlæta þau háu laun sem hann fær.

„Hann er enn frábær leikmaður, en er hann að spila eins og leikmaður sem á skilið að vera einn sá launahæsti í landinu? Ekki eins og staðan er núna.“

Saka hefur skorað þrjú mörk í átta leikjum á tímabilinu en átti erfitt uppdráttar í 2-1 sigri Arsenal gegn Leeds um helgina.

O'Leary telur að Saka þurfi að bæta sig ætli Arsenal að berjast um stærstu titlana.

„Ef hann nær sér á strik verður Arsenal mun sterkara lið.“