433

Afstaða Alvarez breytt og Arsenal getur leyft sér að dreyma

Mynd
Getty Images

Julian Alvarez, leikmaður Atletico Madrid, er mun opnari fyrir félagaskiptum til Arsenal nú en í sumar. Mirror fjallar um málið.

Arsenal hafði áhuga á argentíska sóknarmanninum í allt sumar og var til í að greiða meira en 100 milljónir punda fyrir hann. Kappinn vildi þó aðeins ganga í raðir Barcelona.

Atletico stóð þó fast á sínu og tók ekki í mál að selja hann. Tímabilið hefur hins vegar byrjað brösuglega hjá Alvarez og er hann sagður ósáttur í spænsku höfuðborginni.

Ku hann ekki vera eins staðfastur á því að fara til Börsunga nú og gæti Arsenal orðið hans næsti áfangastaður. 

Talið er að Arsenal muni reyna við Alvarez á ný í janúar.