433

Veittist að stórstjörnu í verslunarmiðstöð eftir að dómur féll á dögunum - Myndband

Mynd

Granit Xhaka, fyrirliði Sunderland, lenti í orðaskiptum við stuðningsmann Newcastle í verslunarmiðstöð eftir að sá síðarnefndi gerði grín að dómi sem féll yfir knattspyrnumanninum á dögunum.

Xhaka, sem er 34 ára, var nýlega dæmdur í Sviss fyrir að hafa orðið sér úti um falsað bólusetningarvottorð gegn kórónuveirunni árið 2022, þegar hann lék með Arsenal. Hann fékk 150 þúsund franka sekt, jafnvirði um 23 milljóna íslenskra króna, en refsingin er skilorðsbundin til tveggja ára.

Myndband af atvikinu er í mikilli dreifingu á samfélagsmiðlum. Þar má heyra stuðningsmanninn kalla ítrekað „Covid“ á eftir Xhaka, sem reiddist og reyndi að nálgast manninn. Annar maður náði þó að róa hann niður áður en hann gekk í burtu.

Xhaka hefur áður beðist afsökunar á málinu og viðurkennt mistök sín.